Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 21 keypti Sjóvá 1.844.000 eigin hluti að kaupverði 60.649.600 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
30.5.2022 | 14:42:31 | 60.000 | 32,60 | 1.956.000 |
31.5.2022 | 13:08:41 | 75.632 | 33,00 | 2.495.856 |
31.5.2022 | 14:09:47 | 473.191 | 33,00 | 15.615.303 |
31.5.2022 | 14:10:54 | 230.769 | 33,00 | 7.615.377 |
31.5.2022 | 14:54:14 | 112.408 | 33,00 | 3.709.464 |
2.6.2022 | 14:39:54 | 892.000 | 32,80 | 29.257.600 |
Samtals | 1.844.000 | 60.649.600 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 13. maí 2022.
Sjóvá átti 18.427.105 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 20.271.105 eigin hluti eða sem nemur 1,67% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 5.494.669 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,45% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 177.342.209 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.434.884 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 2,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is